Um hönnuðinn

Kamilla Ósk Heimisdóttir
Ég hef verið að skapa frá því ég man eftir mér. Prjónaskapur og myndlist eiga sérstakan stað í hjarta mínu og í dag starfa ég í garnverslun þar sem ég fæ að deila ástríðu minni með öðrum. Sem fagurkeri út í fingurgóma finn ég innblástur í fallegu umhverfi og legg metnað minn í að skapa hlýjar og vandaðar vörur með persónulegum blæ.